Oddný Sól í pössun og afi Matti

Nú er Oddný Sól Smilelangafi Matti og barnabarnabörnin á Eyri Arnastapaí pössun hjá ömmu og afa, og verður vonandi í nokkra daga í fríinu sínu, við erum búin að fara á rúntinn til Díu og Gunnars þar lentum við í laugardagsgrónagrautnum hjá þeim. Þar er búinn til grjónó og slátur og allskonar álegg og brauð og allflestir í familíunni  þeirra koma  börn barnabörn og barnabarnabörn og svo tengdabörn. Skemmtilegur siður. Svo daglega hittumst við yfirleitt hjá þeim um 10:30 því pabbi kemst ekki upp stigana hjá mér, ef við komumst og  þegar þau geta sem er svo til daglega þá er pabbi Matti Ásbjörnsson 95 ára unglingur sóttur á Hlévang dvalarheimilið og drukkið kaffi með honum og fitjað upp á gamla tímanum sem hann man eins og gerst hafi í gær og hérumbil hvaða dag og kl hvað. Hann er ótrúlegur hann pabbi minn við erum stundum 4 ættliðir á körfuboltaleikjunum hér í Keflavík, hann, ég , sonur og börnin hans.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ gaman að sjá þessa mynd þarf að læra að gera svoleis...hefði sko alveg vilja fá smá smakk af slátrinu og grjónagrautnum mmm...:) heyrumst og gaman að sjá blogg loksins hehe

love greta

greta Josepsdottir (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 17:39

2 identicon

Elsku frænka

Innilegar hamingjuóskir með pabba, stórir knúsar á Stefán 

knúsar

Ásdís frænka 

Ásdís frænka (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 12:59

3 identicon

Hæ hæ og til hamingju með bloggið þitt.

Þúsund þakkir fyrir pössunina á dóttlunni minni. Hún er lánsöm að eiga svona góða ömmu og afa.

kv. frá Hafnarfirði

Eva Birgitta (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband